|
15.01.2009 20:22:02 / vordis
Jahérna þá hef ég fengið 60.000 heimsóknir á síðuna mína frá upphafi en fyrsta færslan var skráð 1 október 2004 þetta gerir að meðaltali um 40 heimsóknir á dag sem mér þykir nú bara vera nokkuð gott. Annars er allt gott að frétta af okkur sit núna og bíð eftir að Gummi skili sér heim en hann er á leiðinni heim frá Hólum. Hann kemur síðan ekki til með að koma heim um næstu helgi en þá fer hann vestur til að sjá um þorrablót fyrir Þingeyringa  Annars er ég nú bara að bíða eftir því hvort það sé ekki öruggt að ég geti skellt mér með Gumma til Seattle í mars þegar hann fer til að sjá um þorrablótið þar en ég er enn ekki búin að fá stundartöflu fyrir þetta fag sem ég er í og veit þvi ekki hvort það verður einhver skildumæting t.d í verklega tíma en væri það nú ekki alveg týpiskt að það hitti á akkúrat þegar Seattle ferðin verður.
»
|