Jæja þá er komin ró á í Kjarnagötunni en loksins fannst tími til að halda uppá afmæli Helgu Guðrúnar og var það gert með því að við buðum í morgunkaffi kl. 11 í morgun en enduðum á því að hafa fyrst grjónagraut og brauð og að því loknu köku með BLEIKU kremi sem var einlæg ósk afmælisbarnsins


Henni fannst það nú hálf undarlegt dömunni að halda uppá afmælið sitt 10 dögum eftir réttan afmælisdag en er samt alveg fullkomlega sátt við daginn.
Þetta er líka búin að vera góður dagur að öllu leiti allt gengið eins og það á að gera í sambandi við afmælið og síðan fékk ég þessar líka æðislegu frétti af ónefndum vini/vinkonu sem ég gleðst svo innilega yfir að ég er enn að jafna mig á þessu



(viðkomandi veit hvað um er að ræða)
Og til að enda daginn þá ætlum við að vera hér í rólegheitum heima hjónin og hafa það huggulegt


Ekki veitir af því nú eru ekki nema u.þ.b 10 dagar í að Gummi fari vestur á Núp þar sem fyrsta jólahlaðborðið er eftir tæpar 2 vikur og þá komum við ekki til með að hafa hann heima í amk. rúmar 3 vikur, en hann nær því nú vonandi að koma heim um næstu helgi.