Dísin
24.09.2007 11:29:30 / vordis

Yndisleg helgi

jæja þá erum við hjónin snúin aftur til veruleikans eftir frábæra helgi í sumarbústað á Illugastöðum fjarri öllu daglegu amstri, stressi, vinnu, skóla og börnum.

Ég var búin að taka upp náttfötin áður en Gummi var búin að bera innúr bílnum eða svona næstum því var komin í þau þegar hann kom frá því að setja bílinn á bílastæðið og síðan fórum við ekki út úr bústaðnum frá föstudagskvöldi fyrr en við fórum heim á sunnudeginum nema rétt til að fara í pottinn.  Og Adda ástarþakkir fyrir freyðivínið það smellpassar við pottinn.

þetta var semsagt yndisleg helgi í tómri afslöppun sofið, borðað, spilað, spjallað, lesið og farið í pottinn enda komum við endurnærð til baka.

Og nú er bara að takast á við námið og reikna og reikna og reikna 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 22:35:30 / vordis

Loksins myndir

Jæja þá tókst mér nú loksins að muna eftir því að setja inn myndir úr partýinu góða.  Það er búið að vera að rukka mig svo mikið um þær þannig að ég taldi víst best að setja þær inn þeir drífa sig þá kannski að borga sem eiga það eftir þegar þeir sjá að það var fjör og gaman hjá þeim :):):)):*Nei nei smá joke

Annars er bara allt í góðu er að vísu búin að vera eitthvað ferlega þreytt í dag veit ekki alveg hvað er í gangi er búin að vera utanvið mig og hálfskrítin en vonandi er það bara vegna þess hversu óróleg Helga var í svefninum í nótt.:S:$

Nú styttist óðum í það að við hjónin skellum okkur tvö út í óvissuna um helgina eða svona næstum því það sem verður með í farteskinu eru góðar myndir, góðar bækur, fullt af DVD, náttföt og sundföt ásamt góðum mat og drykk.  Börnin eru að deyja úr forvitni hvert gamla liðið ætli:P:P:P:P:P

En þetta er eitthvað sem alveg er komin tími á.

Er að byrja á fullu á vinnunni við lokaverkefnið nú er staðan orðin þannig að ég þarf að passa mig á því að fara ekki alveg á flug með það hvað ég get gert eða prófað að gera og spá í það að þetta eru bara 6 einingar.

Var að hlaða inn í tölvuna fullt af myndum þannig að næst á dagskrá er að setja inná síðuna hennar Helgu Guðrúnar :):):)

knús og kossar þar til næst 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 09:20:57 / vordis

Frábært laugardagskvöld

Hvað er betra en laugardagskvöld í góðra vina hópi?? Ekki neitt það hef ég sagt áður og fer ekki ofan af því.

Á laugardagskvöldið þá hittumst við saumaklúbburinn ásamt mönnunum okkar urðum allt í allt 12 edn það vantaði 2 hjón, eina konu (buðum eiginmanninum að koma) og einn eiginmanninn. Við vorum heima hjá Dísu og Gunna og þetta endaði í heljarinnar partýi fyrst grilluðum við humar síðan var nauta rib eye og lambalæri í aðalrétt síðan var rabbabararéttur og ís í desert og kaffi og konfekt þar á eftir :P:P:P:P:P:P:P

síðan var drukkið og dansað fram á nótt og fyrir utan þá óléttu sem fór heim fyrir miðnætti og einn eiginmanninn sem fór heim á svipuðum tíma vegna barnapíuleysis þá var tjúttað, spjallað hlegið og haft mikið gaman alveg fram undir morgun þau fyrstu voru að fara heim milli 3 og 4 og mín var að fara heim að ganga 5 eftir frábært kvöld.

Leiðinlegt fyrir þær sem ekki komust að missa af þessu en þær verða örugglega með næst þegar þær heyra af hverju þær misstu:lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol::lol:

Síðan í gær fórum við frekar glær hjónin í nafnaveislu hjá Þórhalli Eyvindarsyni litla kútnum hennar Huldu vinkonu og á föstudaginn þá eignaðist ég frænda sem nefndur hefur verið Haukur þegar Doddi og Dóra bættu við fjölskylduna. Nóg að gera hjá þessari fjölskyldu en í veislunni í fær voru 2 óléttar Birna sys sem á að eiga eftir mánuð og Hildur frænka sem er skrifuð inn í byrjun janúar. Rík fjölskylda.

Annars er nú að styttast í að gamla settið foreldrar mínir eigi 40 ára brúðkaupsafmæli en það er á föstudaginn.

Síðan styttist í það að við hjónin ætlum að eiga helgi útaf fyrir okkur en við erum reyndar ekki enn búin að koma börnunum fyrir á eftir að tala við mömmu hvort hún vill fá þau í heimsókn um þarnæstu helgi Helgu og Baldur en Nína og Máni ætla að skella sér austur þá helgi. þ.e 21-23 sept. Við áttum alltaf eftir að gera eitthvað í tilefni af 15 ára brúðkaupsafmælinu okkar svona algjörlega 2 ein.


» 1 hafa sagt sína skoðun


Hverjir kíkja í heimsókn?
Í dag:  4  Alls: 117201
Markmið ársins