Þá er sjálf
prófatíðin byrjuð, tókum reyndar forskot á sæluna og fórum í
eitt próf á föstudaginn, held það hafi bara gengið ágætlega
eða vona það að minnsta kosti þangað til annað kemur í ljós.
Þá eru 3 próf eftir eitt 8 des og síðan 11 og 14. Prófið þann
11 er það sem mesti kvíðinn er fyrir langerfiðasta prófið að
mínu mati.
Nína er líka komin á
fullt í prófin og kemur örugglega til með að rúlla þessu öllu upp
stelpan fékk alveg frábærara annareinkunnir hjá kennurunum þannig
að prófin ættu ekki að vera henni erfið. Hún fer í sitt síasta próf
þann 12 og kemur síðan beint heim og fer að vinna í bakaríinu hjá
Axel um jólin.
Er komin langleiðina
með að kaupa jólagjafirnar það eru ekki margar eftir sem betur fer
en þær fá að bíða fram yfir próf það er nokkuð
ljóst.
Tók smá pásu frá
prófalestrinum seinnipartinn í gær og skellti mér í
laufabrauðsgerðina með stórfjölskyldunni ekkert smá notalegt að
eiga svona stund saman en þarna koma saman amma, mamma, Ella og
Dóri systkyni mömmu ásamt þeim afkomendum sem eru á svæðinu amk.
þeim sem eru á lausu og voru skornar út milli 400 og 500 kökur
nokkuð gott dagsverk það.
Það verður örugglega
lítið um blogg á næstunni þar sem prófin eru í algleymingi verst að
jólaskreytingar og annað eru líka í algleymingi þessa dagana tek
mig nú samt kannski til í kvöld og skelli upp nokkrum seríum og
jólaköllum.
Er einnig með móral yfir því að enn hefur ekki gefist tími til að
halda upp á afmæli Helgu Guðrúnar en nú er svo komið að hún segist
ekki vera búin að eiga afmæli, ætlum reyndar að redda því með
morgunkaffi þann 17 desember sem er sunnudagur, fólki veitir ekkert
af því að taka sér smá pásu í jólastressinu þegar nálgast jólin og
setjast niður í smástund.
Hafið það
sem best þangað til næst.