Dísin
12.03.2009 01:40:03 / vordis

Ferðasagan.....

Jæja þá er komið að því að skella inn ferðasögunni í grófum dráttum, frá Akureyri var lagt af stað sem leið lá til Rvíkur með Flugleiðum á miðvikudaginn 4 mars með 50 kg af íslenskum þorramat í farteskinu:), þaðan var svo haldið til Keflavíkur og tékkað inn í flug til Boston, flugið var í alla staði frábært glampandi sól og heiðskýrt þannig að Grænland og síðan austurstönd Kanada og USA var skoðað úr lofti.  Þegar lent var í Boston var dílað við tollarana sem voru nú ekki alveg sannfærðir í upphafi með það að leyfilegt væri að koma með þennan "skrítna" mat inn til USA en allt gekk það þó upp á endanum og skelltum við hjónin okkur á hótel um nóttina, byrjuðum á því að fá okkur kvöldverð og síðan var farið snemma að sofa að staðartíma en ekki eins snemma að okkar tíma:):):).  Að morgni þess 5 var dagurinn tekin snemma enda áttum við flug til Seattle í gegnum Salt Lake City kl 6:30 ferðin þangað gekk í alla staði vel stutt stopp í SLC og komið til Seattle um hádegi að staðartíma (36 tímum eftir brottför frá AK), þar tók Zoe frænka Gumma á móti okkur og þar fengum við aðeins að svitna þar sem í fyrstu vantaði einn matarkassann þegar allur farangur var kominn en hann skilaði sér þó á endanum, sem betur fer:):):)
Fimmtudegi og föstudegi var eytt í að redda því sem redda þurfti fyrir þorrablótið ásamt því að kíkja aðeins í búðir aðallega til að skoða verð, ásamt því að vinna upp síðasta ár í kjaftasögum af fjölskyldunni við frændfólkið:lol::lol::lol::lol::lol::lol:
Laugardagurinn fór í að undirbúa þorrablótið sem tókst í alla staði frábærlega vel og allir ánægðir. Um það leiti sem borðhald var að byrja kingdi niður snjó bara eins og vera á á þorrablóti og leist kananum ekkert á voru á tímabili hræddir um að liði myndi snjóa inni, ekki fannst okkur þetta mikill snjór festi ekki á götum en menn þurftu að taka upp sköfurnar til að verka af bílunum.
Á sunnudeginum var farið og verslað "smá" ásamt því að fara út að borða ásamt Hrönn, Láru, Sigga, Zoe og Chris og í leiðinni var ferð þeirra til Íslands í júní rædd fram og til baka, síðan var kíkt á pöbbinn og enduðum við í stúdíóinu hjá Chris á hljómsveitaræfingu, þar sem Gummi fékk aðeins að taka í kjuðana á settinu hjá Chris og leiddist honum það ekki:$:$.
Mánudagurinn var ekki tekin neitt sérstaklega snemma en þó náðu hjónin að versla aðeins meira og síðan var farið í að pakka niður og Seattle yfirgefin um miðnætti á mánudagskvöldi og töskurnar tékkaðar inn alla leið til Íslands svo ekki þyrfti að hafa áhyggjur af þeim í Boston.
Eftir að hafa millilent í Minneappolis þá var lent í Boston um 11 að morgni að staðartíma og drifum við okkur í miðbæinn og löbbuðum okkur upp að hnjám ásamt þvi að versla smá, lékum túrista fórum í skoðunarferð um Boston með leiðsögn, tókum einn drykk á Cheers og fengum okkur að nautasteik á einum elsta veitingarstað Boston áður en haldið var á flugvöllin eina ferðina enn8)8). Þar tékkuðum við okkur inn og nú lá leiðin heim til Íslands sem svo sannarlega stóð undir nafni þegar lent var í Keflavík í roki, rigningu og skítakulda, akkúrat 24 tímum eftir að lagt var af stað frá Seattle.  Fórum beina leið á Reykjavíkurflugvöll og þaðan HEIM TIL AKUREYRAR lentum um 11:20 og skriðum beina leið uppí rúm til að vinna á móti svefnleysi síðasta sólahrings, þar sem eingöngu hafði verið sofið í flugvélunum.
Þrátt fyrir að ferðin hafi verið skemmtileg og alltaf skemmtilegt að sjá nýja staði þá er alltaf gott að komast heim í sitt eigið rúm:lol::lol::lol:



Dillan skrifaði
velkomin heim
vordis skrifaði
Þakka þér:):)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Hverjir kíkja í heimsókn?
Í dag:  40  Alls: 113574
Markmið ársins