Dísin
25.03.2010 15:29:04 / vordis

Bara allt að gerast

Nú er bara allt að gerast í gær var stór dagur í lífi okkar Baldri var boðið að byrja sem nemi í kjötiðn hjá Kjarnafæði og byrjaði hann á samning þar í dag. Síðan var mér boðið starf hjá Matís og byrja ég aðeins í maí/júní í þjálfun og kem síðan til fullrar vinnu í ágúst :) Þannig að nú verður allt sett á fullt við að klára meistaraverkefnið og er stefnan sett á að klára áður en ég byrja að vinna þó ég nái ekki að útskrifast í vor en ef vel gegnur í apríl þá ætti að vera séns að klára í vor og útskrifast en það þýðir að lítið verður sofið í apríl en samt á sig leggjandi að reyna það og ef það gengur ekki þá verður bara klárað í ágúst/sept.
Nína hamast og hamast við að læra undir inntökuprófið í læknadeildina í sumar og er á fullu við það.
Stefnan er sett vestur á firði á mánudaginn þar sem við ætlum að eyða páskunum á Núpi en Hótelið verður opið og orðið vel bókað þó er enn laust pláss eftir því sem ég best veit ef einhver vill skella sér vestur á "Aldrei fór ég suður".



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2010 19:50:42 / vordis

Seattle eftir tvær vikur :):)

Já það er allt að gerast þessa dagana mín á fullu í meistaraverkefninu svo ég geti leyft mér þann munað að fara með Gumma til Seattle þegar hann fer með þorrablótið út og nú eru rétt tvær vikur í brottför en við förum út þann 6 mars og komum aftur heim þann 15 :):):)
Annars er það helst að frétta að ég fór og hitti annan húðsjúkdómalækni útaf útbrotunum og viti menn var sjúkdómsgreind með frekar algengan húðsjúkdóm sem meira að segja hefur íslenskt nafn (segir nú eitthvað um hinn lækninn) og er nú komin í ljósameðferð þrisvar í viku við honum og kláðinn og útbrotin fara minnkandi dag frá degi, einnig fór ég og hitti hómópata og er nú komin á glútenlaust fæði til prufu, gengur bara ágætlega en erfitt að taka eitthvað svona út og ekki eru þessar vörur gefnar það er á hreinu.



» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2010 13:19:50 / vordis

tekið á mataræðinu

Þá er frúin að taka sig til og henda út mjólk, eggju, hveiti, geri ofl. sem hefur verið oft á borðum til þess að athuga hvort það breytir einhverju  með útbrotin og kláðan sem hefur herjað á mig undanfarna mánuði og engin virðist geta sagt til um hvað er.  Hér á Akureyri virðist ekki vera neinn læknir nema þá barnalæknarnir sem tekur ofnæmispróf varðandi matarofnæmi og þar sem ég vil meina að það virðist oft blossa upp kláðinn eftir máltíðir þá vildi ég gjarnan komast í ofnæmispróf en það þarf að bíða suðurferðar. Húðsjúkdómalæknirinn hafði ekkert annað í boði fyrir mig en enn eitt sterakremið og meiri ofnæmispillur og ef það virkar ekki þá innlögn á húðsjúkdómadeildina fyrir sunnan til að reyna að finna út hvað er. Þannig að mín ákvað að reyna fyrst breytt mataræði og sjá hvort það hefur áhrif, fara í ofnæmispróf í næstu suðurferð áður en farið verður í 1-2 vikna sjúkrahúslegu.
Að öðru leiti þá rúllar lífið sinn vanagang í Kjarnagötunni, frekar tómlegt heima núna þar sem við erum bara tvær mæðgurnar en Helgu finnst það æðislegt það er "mömmu og stelpu kúrikvöld" á hverju kvöldi :lol::lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2010 10:55:47 / vordis

lífið í Kjarnagötunni

Jæja er ekki kominn tími á fyrsta blogg ársins 2010 eða hvað?
Lífið í Kjarngagötunni gengur að mestu sinn vanagang það er þó ennþá að fækka á heimilinu þar sem hann Baldur Már er að flytja að heiman og ætlar að fara að leigja með tveimur vinum sínum, þannig að framvegis verðum við þrjú í heimili og verða það viðbrigði frá því sem verið hefur.
Gummi fer í fyrstu lotu annarinnar í næstu viku og verðum við því bara tvær heima mæðgurnar þannig að það stefnir í rólegheitaviku hjá okkur.
Annaðkvöld verður stelpukvöld þar sem við ætlum að hittast nokkrar gamlar vinkonur og eiga góða stund saman :lol::lol: og verður það örugglega mikið gaman, mikið fjör.
Ég er að vinna í verkefninu mínu á fullu og gengur bara ágætlega er þó ekki alveg að komast í "gírinn" til að fara að hespa þessu af og klára en það fer vonandi að koma að því.
Í september steyptist ég öll út í útbrotum með heljarinnar kláða og hef verið að fást við það síðan en enginn virðist geta sagt hvað þetta er og hefur þetta orðið til þess að nú er frúin búin á því eftir nokkra svefnlitla mánuði. Búin að taka meðferð við kláðamaur sem ekkert hafði að segja ásamt nokkrum sterameðferðum og á nú að hefja enn eina sterakremsmeðferðina ásamt því að ég ætla að prófa að taka út hitt og þetta úr mataræðinu s.s. egg, mjólk, lauk ofl. því þessi einkenni líkjast mjög ofnæmi en þó hefur ekki verið hægt að benda á eitthvað eitt, ef þetta virkar ekki þá er næsta skref að ég leggist inn á húðsjúkdómadeildina fyrir sunnan til frekari rannsókna.



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2009 09:18:16 / vordis

Nína orðinn stúdent

Á föstudaginn útskrifaðist Nínan mín sem stúdent af náttúrufræðibraut í VMA og um kvöldið þá buðum við stórfjölskyldunni í mat þ.e. pabba, mömmu, Önnu, Gesti, ömmu, Birnu, Rögga og strákunum og enduðum við 17 í mat um kvöldið og var það voða gaman. Það voru stoltir foreldrar og systkini sem fylgdust með dömunni fara uppá svið og taka við einkunnablaðinu sínu.
Í gær fór Gummi austur á Reyðarfjörð með búslóðina hennar og skilaði Mána heim í leiðinni en Nína flytur á Reyðarfjörð á millli jóla og nýjárs, verður skrítið að hafa hana ekki í nágrenninu því þótt hún hafi verið flutt að heiman var hún alltaf að kíkja við.
Baldur ber út jólapóstinn en hefur síðan enga vinnu fengið eftir áramótin. Eftir jól tekur við síðasta törnin í rannsóknavinnunni hjá mér og síðan bara skrifa og skrifa og skrifa ef maður ætlar að reyna að útskrifast í vor.
Jólagjafakaupin alveg að verða búin bara eftir að kaupa handa börnunum mínum er meira að segja búin að kaupa gjöfina hans Gumma :):)



» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2009 22:33:26 / vordis

Nína alveg að verða stúdent :):)

Þá eru allar einkunnir komnar í höfn og húfan komin í Kjarnagötuna þannig að á föstudaginn setur "litla" stóra barnið mitt upp hvíta kollinn ótrúlegt að maður eigi barn sem er að klára framhaldskóla, er ekki frá því að mamman eldist við það :):)
Annars bara allt ágætt að frétta úr Kjarnagötunni ég á fullu í meistaraverkefninu mínu búin að vera í prófi og verkefnaskilum síðustu vikuna og nú er bara að skella sér í það að klára rannsóknirnar og síðan skrifa og skrifa, enda stefnt að því að klára meistarann í vor,
Baldur er búin að fá vinnu á póstinum fram að jólum og vonandi fær hann svo einhverja vinnu eftir áramótin.
Gummi kemur heim á morgun eftir þriggja vikna útlegð fyrir vestan í jólahlaðborðum en nú fer hann að koma heim og síðan er hann í prófi á föstudaginn en það er síðasta prófið hans fyrir jólin og þá er hann kominn í frí fram yfir áramótin.
Litla barnið er á fullu í skólanum og líkar bara vel orðin voða dugleg að lesa, skrifa og reikna en finnst nú misgaman að gera það. Stúfur jólasveinn mætti með kartöflu í skó svo nú var aldeilis passað uppá að fara að sofa á skikkanlegum tíma :):)



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2009 09:49:46 / vordis

Loksins

Loksins er eitthvað að gerast fór til læknisins eina ferðina enn útaf, hausverk, kvefi, kulda og öllu því sem búið er að hrjá mig síðustu mánuði og loksins eitthvað annað en enn einn sýklalyfjakúrinn á morgun skal dælt úr frúnni blóði og teknar myndir svona til að tékka hvort það sé í lagi með höfuðstykkið á mér :):):) nei segi svona.
Annars er allt gott að frétta úr Kjarnagötunni frúin fór í þvílíku kvennaferðina um síðustu helgi með Gyðjunum hinum frábæra saumaklúbb og áttum við góða stund saman í Lundskógi yfir góðum mat og drykk.  Á sunnudeginum vorum við farnar að halda að við myndum þurfa að láta ná í okkur þar sem þvílíkt hafði snjóað um nóttina en ákváðum að vera bara rólegar fram eftir degi og viti menn ekkert að færi þegar við lögðum af stað, en þetta er ferðin þar sem við fengum allar gerðir af íslensku veðri á einum sólahring.
Brjálað að gera hjá bóndanum stanslausar veislur fyrir vestan svo það virðist ekki vera alveg á næstunni sem hann nær helgi heima en vonandi kemur að því að fjölskyldan nær að eyða eins og einni helgi saman í að gera ekki neitt, nú eða kannski bara í það að koma gestaherberginu í stand.



» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2009 14:04:21 / vordis

komst heilu og höldnu heim

Orðið pínu langt síðan síðast en mín komst nú heldur betur heilu og höldnu heim frá Hollandi með amk helmingi meiri farangur heldur en á útleiðinni :) ótrúlegt að það var nú hægt að versla þarna í Utrecht þrátt fyrir slæmt gengi, eins gott kannski að gengið er ekki skárra en það er annars hefði mín líklega endað með tonn í yfirvigt :):):)
En hvað um það mín fór Utrecht-Amsterdam-Keflavík-Reykjavík-Akureyri á einum 14 tímum og gekk ferðin í alla staði mjög vel, það urðu heldur betur fagnaðarfundir þegar litla snúllan mætti á flugvöllinn að ná í mömmu sína en svona 10 mín seinna var áhuginn allur við töskurnar sem mamman kom með og hvað þær geymdu :):)
Kom heim á laugardegi og á mánudagsmorgun kl. 8:10 byrjaði skólinn og nú er min búin að vera á fullu að skrifa og skila greinagerðum vegna ferðanna, verkefnum, undirbúa ferð á ráðstefnu auk þess að reyna að koma íbúðinni í almennilegt stand eftir sumarið þ.e koma persónulegu mununum aftur á sinn stað en einhvernvegin þá situr það á hakanum gagnvart náminu.... skreppa í smalamennsku og sitthvað fleira er búið að afreka á þessum vikum.
Um síðustu helgi fórum við Gummi og Helga í Hópið og áttum þar rólegheitadag á laugardeginum og skelltum okkur svo í stóðrétt á sunnudeginum.
Um næstu helgi er Gyðjuferð í sumarbústað í Lundskógi, svaka gaman svaka fjör getur ekki annað verið þar sem 7 gyðjur koma saman:):):)




» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2009 19:39:24 / vordis

Holland og engir túlípanar enn.............

Eftir að hafa farið fram og til baka þar sem fyrst þurfti að fara á einn stað til að ná í lykilinn og síðan til Zeist þar sem herbergið er þá féllust mér alveg hendur og mig langaði mest til að fara að grenja, herbergið frekar óaðlaðandi rykugt og það vantaði meira og  minna öll eldhúsáhöld sem þar áttu að vera og enginn af þeim sem í íbúðinni eru með mér heima.  En eftir að hafa tekið uppúr töskunni og komið mér fyrir ásamt því að fá mér að borða þá fór þetta aðeins skánandi og hefur bara batnað þar sem krakkarnir sem eru með mér í íbúð hafa öll verið tilbúin að lána mér það sem til þarf svo ég svelti nú ekki á meðan ég er hér :):):)  því þótt Mieke kennarinn minn hafi tilkynnt þetta strax á mánudag þá hafa þeir ekki tíma til að koma og laga þetta fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku!!!!  Ekki það að mér finnst merkilegt að sá/sú sem hafði fyrir því að koma með sæng og kodda handa mér skildi ekki tékka á þessum hlutum í leiðinni en í herberginu beið mín ný sæng og koddi sem ég á og má taka með mér heim ásamt því að ég fékk þessi líka æðislegu rúmföt frá sumarskólanum með þvílíku augýsingunni og áletruninni að það hálfa væri nóg.
Koman í skólann var allt annað mál þar var tekið vel á móti okkur og Hópurinn telur 21 frá 10 eða 11 löndum áttum reyndar að vera 25 en afríkubúarnir fengu ekki visa í tæka tíð og komust því ekki.  Veðrið hefur leikið við okkur hér og fór vel yfir 30 stiginn í 2 daga sem var eiginlega alveg 2 dögum of mikið svaf ekki mikið næturnar sem hitinn fór ekki niðurfyrir 20 stiginn.
Skólinn eða öllu heldur stofnunin sem sér um kúrsinn sem ég er í stjanar við okkur út í eitt, við okkur, þurfum ekki að borga hádegismatinn, búið að bjóða okkur einu sinni flott út að borða, búið að bjóða okkur í "discover Holland" túr sem mér fannst góður að öllu leiti nema að það vantaði leiðsögn í rútuna var mikið um keyrslur en fyrst fórum við á bóndabæ þar sem framleiddir eru ostar og tréklossar og síðan var keyrt og farið í safn sem svolítið í líkingu við Árbæjarsafnið þ.e nánast gamalt þorp þar sem í húsunum má ýmisst sjá handverksmenn við iðju sína, eða  hreinlega versla við bakarann eða apótekarann allt eftir því hvernig fólk vill hafa þetta og síðan var keyrt heim yfir vatn sem búið er að loka og er núna bara beðið eftir að þorni upp ótrúlegir Hollendingarnir og ótrúlegt en satt engir túlípanaakrar í þessari ferð bara risavaxnir kál og rófugarðar :):):) síðan er mín aðeins búin að skoða í búðir og versla smá, ekki hægt annað fyrst maður var í H&M á meðan þrumuveðrið gekk yfir á fimmtudaginn og á morgun ætla ég að eyða deginum í það að sigla um síkin hér en ég er búin að bóka mig í dagsferð þar sem silgt er fyrst um síkin inni í bænum og síðan stoppað við einhvern skóg/garð þar sem er stoppað í 2,5 tíma og síðan er silgt til baka um síkin sem liggja utanum borgina allt undir leiðsögn og nú er bara að vona að veðrið haldist gott :):):)



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 12:03:43 / vordis

Aftur á norðurlandinu í nokkra daga

Jæja þá er maður komin aftur á norðurlandið í nokkra daga áður en haldið verður til Utrecht í Hollandi til að taka þar eins og einn sumarkúrs í tvær vikur.
Við Helga komum norður á fimmtudaginn og skelltum okkur í sveitina á föstudaginn þar sem farið var á fullt í að undirbúa afmælisveislu fyrir mömmu en hún varð 60 ára á fimmtudaginn. Laugardagurinn fór svo í að klára undirbúninginn og síðan var haldin þessi líka flotta veisla og hlöðuball á eftir og dasað fram undir morgun ekkert smá mikið gaman og mikið fjör :):):)
Svo kom ég til Akureyrar rétt til að komast í netsamband en ætla að halda aftur í sveitina á eftir þar sem við Helga ætlum að láta ömmuna og afann stjana við okkur fram undir helgi en þá fæ ég íbúðina mína aftur.
Föstudagur og laugardagur fara svo í það að pakka upp því sem komið var með að vestan og pakka aftur niður fyrir Holland en ég flýg suður á laugardagskvöld og út á sunnudagsmorgunn.
Sumarið á Núpi hefur gengið eins og í lygasögu og því verið minni tími fyrir verkefnið mitt en ætlað var en það verður farið á fullt í það um leið og ég kem frá Hollandi:):)
Gummi verður ekkert heima fyrr en í september þannig að nú er maður kominn í svona grasekkjustand eina ferðina enn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2009 10:52:16 / vordis

Frábært að vera á Núpi

Jæja það er kannski löngu kominn tími á að segja restina af ferðasögunni, en ég var alla dagana á rannsóknarstofunni til ca 15 nema á föstudeginum þá hætti ég um hádegi og alla dagana fékk ég mér góða göngutúra til að skoða mig um enda féll ég alveg fyrir Bergen með öll sín gömlu hús og þröngu götur. Á miðvikudagskvöldið rigndi eins og hellt væri úr fötu og alla nóttina og leist mér ekkert á ef þetta yrði svona það sem eftir yrði ferðar en það stytti upp og síðustu 3 dagana þá var yfirleitt glampandi sól en gerði góðar 5 mínútna skúrir öðru hverju sem gerðu ekkert nema bara hreinsa loftið:):) Á föstudeginum þá fór mín í svokallaða hafnarsiglingu en það er klst. sigling um hafnirnar í Bergen og borgin skoðuð frá sjó og er hún ekki síður falleg að sjá þannig.  Á laugardeginum tók ég svo túr um borgina með leiðsögn og aðeins útfyrir hana og skoðaði heimili tónskáldsins Edvard Grieg sem var fæddur í Bergen og bjó þar mestan hluta og Bergenbúar eru mjög stoltir af var það mjög gaman og gaman að heyra sögu margra þeirra húsa sem ég var búin að skoða. Eftir heimkomu á laugardeginum þá skellti mín sér í að þrífa allt og síðan lét ég það eftir mér að fara út að borða svona einu sinni í ferðinni:):) Á sunnudagsmorguninn var svo ekkert í boði nema drífa sig á fætur, skila lyklinum og koma sér í veg fyrir flybus og út á flugvöll og þaðan heim og það gekk auðvitað allt smurt og var mín lent í Keflavík um kl. 15 á sunnudeginum:):)  Þá fór mín að ná í bílaleigubílinn sem í boði var og datt heldur betur í lukkupottinn því í staðinn fyrir Yaris fékk mín Land Rover Freelander sem var mjög gott mál þangað til daginn eftir þegar þurfti að fara að koma honum í stæði svona hér og þar í Reykjavík:):):)
á mánudagsmorgun fundaði ég síðan með Stínu og Helgu leiðbeinendunum mínum um næstu skref í verkefninu og að þeim fundi loknu var aðeins snúist í Reykjavík og síðan lá leiðin heim á leið og þá beið bíllinn minn eftir mér á Ísafirði mátulega kominn úr viðgerð:):)  Og mikið var nú gott að koma heim að Núpi eftir þessa fjarveru.
Svo datt mín í lukkupottinn þegar ég var valin sem annar af tveimur háskólanemum sem hlutu styrk frá Byr sparisjóð og dreif ég mig þá og borgaði fyrir námskeiðið í Hollandi í ágúst:):)
Síðan hef ég verið að vinna að greinagerð um Noregsferðina ásamt því að standa vaktina í móttökunni á hótelinu um síðustu helgi þegar hér voru hátt í 200 manns á svæðinu flestir á ættarmóti og á laugardagskvöldinu vorum við með 200 manns í mat en þá kom til viðbótar á ættarmótið fólk sem ekki var í gistingu hér.
Nú eru rólegheitin allsráðandi á Hótel Núp svo mín situr og skrifar greinagerð um Noregsferðina.



» 0 hafa sagt sína skoðun

16.06.2009 19:12:08 / vordis

Gengin upp að hnjám í Bergen ;);)

Ferðin byrjaði á laugardaginn á Ísafirði þar sem flugið var tekið til Reykjavíkur og þar tók hún Kolla mín á móti mér og tók mig með sér heim þar sem ég gisti um nóttina og auðvitað misstum við okkur í kjaftagangi og áður en við vissum var klukkan orðin 1 eftir miðnætti og mín þurfti að ná flugrútunni uppúr kl 5 þannig að það var lítið sofið þá nóttina en í flugið komst mín á tíma.
Ekki náði ég að sofa mikið í fluginu sem tók tæplega 2,5 tíma og var lent í Bergen 12:20 að staðartíma þar tók við LÖNG bið eftir farangrinum en á endanum skilaði hann sér þó:):):) Á vellinum tók hann Helge á móti mér og tók hann mig í smá útsýnisferð undir leiðsögn á leiðinni í bæinn með viðkomu í búð svo mín gæti keypt helstu nauðsynjar í matinn og kostaði það smáræði augun úr í 10-11 verslun þeirra norðmannanna.  Í herbergið sem reyndist vera stúdíóíbúð var ég síðan komin rétt um kl 15:00 eftir að Helge hafði sýnt mér hvar ég ætti að koma á mánudagsmorguninn en íbúðin er í næsta húsi við rannsóknarstofurnar og í 15 mínútna göngufæri frá miðbænum þar sem allt aðalið er:):)
Eftir að hafa komið mér fyrir fór ég í langan göngutúr og kíkti á markaðinn sem er við höfnina og skannaði hvar búðirnar væru en allt er lokað á sunnudögum.
Á mánudeginum var ég síðan hjá þeim í Nifes fram eftir degi og var kinnt fyrir þeim á rannsóknarstofunni og ákveðið hvernig planið yrði hjá mér, síðan eftir vinnu tók ég góðan göngutúr um annan hluta bæjarins.  Í dag var ég svo á labbinu með henni Bettý fram eftir degi og benti hún mér á að ef ég ætlaði uppá Fløyen skildi ég labba Tippetuen til baka sem er langa leiðin niður af fjallinu og auðvitað gerði mín það eftir vinnu, fór fyrst og skoðaði aðeins mollin og tók síðan lestina uppá fjallið og rölti svo löngu leiðina niður og svo heim alls tók ferðin rúma 5 tíma sem að mestu fóru í göngu, þannig að mín er gengin uppað hnjám og ætti því að sofa í nótt þrátt fyrir að svefnsófinn í íbúðinni sé ekki sá besti sem maður hefur sofið í:):):)



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2009 13:42:48 / vordis

rólegheit í sveitinni

já það verður ekki annað hægt að segja en að maður sé komin í rólegheit í sveitinni :):)
Á föstudagskvöldið skelltum við okkur nokkrar kellur í miðnæturgöngu á Mýrarfellið sem er 312m og gekk það vel, hefði alveg þegið að það væri heiðskýrt og aðeins betri fjallasýn en veðrið gat samt ekki verið mikið betra.
sama kvöld lenti Baldur minn í því að keyra útaf hér í Dýrafirðinum, sem betur fer slapp hann ómeiddur og er nú verið að ganga frá því að fara með bílinn á verkstæði en hann lenti á þúfum og eitthvað fór af stað undir bílnum en að öðru leiti sést ekki mikið á honum og bíðum við nú frétta af því hvað tryggingarnar vilja gera.
Um helgina komu hér nokkrir af ættingjum Gumma og í kvöld koma þau Hrönn, Siggi, Amalie og Chris og stoppa í nokkra daga en þau komu í gær Siggi, Amalie og Chris með Guy sem var að fara á völlin til að fljúga út þau fóru svo aftur á Patró að ná í Hrönn og Lauru vinkonu hennar en þau stefna svo á það að koma öll hingað í dag.
Ég fékk ekki styrk frá KEA til að fara erlendis en ætla samt að halda mínu striki og fer til Bergen á sunnudaginn, þeir hjá NIFES ætla að sjá til þess að það verði einhver á flugvellinum til að taka á móti mér þannig að ég þarf ekki að byrja á því að villast um Bergen :):):)




» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2009 15:30:44 / vordis

Ó Dýrafjörður....

Þá er maður enn eina ferðina komin í Dýrafjörðin og ef þú ert á ferðinni þar þá er alltaf heitt á könnunni á Hótel Núp:):).  Á fimmtudaginn kl 23:00 var loksins búið að gera íbúðina í Kjarnagötunni klára fyrir útleiguna og þá brunuðum við í Dalina þar sem við gistum hjá Hörpu og co, um nóttina síðan í gær var brunað sem leið lá í Dýrafjörðin á Hótel Núp, þar var byrjað á því að þrífa íbúðina sem við höfum í sumar og síðan drifið í að taka uppúr töskum og koma sér fyrir:):)  Eftir allt þetta var maður svo gjörsamlega búin að maður vissi varla hvað maður hét hvað þá meira.  Dagurinn í dag fer svo í rólegheit, á morgun á að ferma Nínu Rún bróðurdóttur Gumma og síðan á mánudagsmorgun flýg ég aftur til Akureyrar þar sem ég þarf að vinna mán-fim, en á fimmtudaginn þá verð ég komin til að vera hér í Dýrafirðinum í sumar svona fyrir utan ferðir til Noregs og vonandi Hollands líka en ég bíð eftir að fá svör við styrkumsóknum.
Annars allt gott að frétta af okkur og litla daman alsæl með að vera komin í frelsið í sveitinni, Nína kemur svo til okkar á mánudaginn en hún fór á Reyðarfjörð fyrst þar sem verið er að ferma systur Mána á morgun.  Baldur er enn á sjó og fer vonandi einn túr í viðbót en svo er hann búin að ákveða að fara aftur í skóla í haust og styðjum við hann eindregið í þeirri ákvörðun sinni.



» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2009 20:37:12 / vordis

Allt að gerast

Já það gekk mikið á í síðustu viku tvær vinkonur mínar eignuðust drengi en það voru þær Silla mín sem átti frumburðinn sinn þann 13 maí og svo eignaðist hún Auður dreng þann 15 og óska ég þeim báðum innilega til lukku með þessa bráðfallegu drengi.
Um helgina skelltum við okkur í Dalina og vorum við mæðgur hjá Hörpu og Boga að aðstoða við undirbúning fermingar frá fimmtudegi til sunnudags en þá var hann Kristinn Helgi fermdur á 14 ára afmælisdaginn sinn.
Svo þegar mín kom heim í gær eftir að hafa verið án netsambands síðan á fimmtudag kom í ljós að mín var búin að fá svar frá þeim í Utrecht og var ég samþykkt inní sumarnámskeiðið hjá þeim og auk þess þá fæ ég skólastyrk sem lækkar gjöldin mín um 300 evrur eða rúmlega þriðjung þess sem námskeiðið og gisting kostar og munar um minna, þannig að  nú bíð ég spennt eftir að fá svör úr þeim styrkumsóknum sem ég hef verið að senda hvort ég næ ekki að nurla saman fyrir restinni og farinu:):)
Og síðast en ekki síst þá á hún Kolla mín afmæli í dag til lukku með daginn dúlla:):)



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
Hverjir kíkja í heimsókn?
Í dag:  15  Alls: 128767
Markmið ársins